Heim Sýna efni eftir merki: vinnudagur
Föstudagur, 08 Janúar 2010 13:17

skríður áfram

Byggingin skríður áfram þó hægt sé, það er búið að vera erfitt að vinna á staðnum í undanförnum frosthörkum en þó hefur mikið gerst. Nú eru öll hurðastykkin komin í að framan og á myndinni eru léttveggirnir sem koma undir þakgluggana. Þeir eru í smíðum hjá Logoflex í Reykjavík og ættu að verða tilbúnir í næstu viku. Um helgina stendur til að koma veggjunum upp á þak og glerja stóra gluggan á vesturveggnum. Þá er ekkert eftir til að loka húsinu alveg nema risastóri horngluggin sem er í smíðum hjá Sandblæstri og Málmhúðun og ætti að vera langt komin. Við verðum á staðnum frá hádegi á laugardag ef einhverjir vilja kíkja.
Best að nota tækifærið og þakka sjálboðaliðunum sem unnu í safninu á síðasta ári fyrir alla hjálpina, en frá mars 2009 til áramóta unnu 51 manns 1028 tíma í sjálfboðavinnu sem er glæsilegt.
Föstudagur, 18 Desember 2009 09:58

Gólfið niðri klárt

Það voru 11 manns sem mættu að morgni miðvikudags í myrkrinu til að steypa gólfið á neðri hæðinni sem er síðasta steypan í húsinu. Guðni múrari og Biggi Guðna mættu úr Reykjavík og Baldur snákur og Raggi frá Sauðárkrók, frá Akureyri mættu svo 7 sjálfboðaliðar. Mjög vel gekk að steypa og um hádegi var öll steypa komin á sinn stað. Í hádeginu hittust svo allir heima hjá safnstjóra í pizzu í boði Greifans, gos í boði Vífilfells og kaffi í boði Nýju kaffibrennslunnar. Klukkan fimm á miðvikudag byrjuðu þeir Guðni, Baldur og Raggi að slípa gólfið og voru þeir að með hléum fram til tíu á fimmtudagsmorgun, útkoman er vægast sagt glæsileg, gólfið er hrikalega slétt og flott sem þýðir að ef ekki eru fjárráð fyrir gólfefnum fyrir opnun, er nóg að bóna það eins og það er. Það eru svona menn sem gera þetta verkefni mögulegt, allir hafa þessir menn nóg að gera í sínu starfi en taka sér samt tíma til að koma norður og gera þetta allt frítt. Jón Dan bauð þeim í læri á miðvikudagskvöld og Anna Hjálmars kom með brauð með kaffinu fyrir alla nóttina. Þakklæti til þess fólks sem leggur sig fram við að hjálpa er erfitt að koma í orð.
Nýjar myndir af gólfsteypunni í myndasafni í albúmi: „bygging safnsins – síðasta steypan“  Minni á bókina í jólapakkann og svo gestabókina og spjallið.
Laugardagur, 21 Nóvember 2009 18:49

Gólfeinangrun búin

8 manns unnu í safninu í allan dag (laugard 21.11.09) og klárað var að einangra gólfið og byrjað að járnabinda. Svakalega góður og skemmtilegur dagur :-) Þökkum þeim sem komu fyrir frábæran dag. Nýjar myndir í myndasafni.
Miðvikudagur, 18 Nóvember 2009 23:52

Gólfeinangrun

Nú er verið að slétta gólfið niðri og einangra á fullu, en til að geta byrjað á járnabindingu strax eftir helgi og grípa næstu hlýindi í að steypa, VERÐUM VIÐ AÐ FÁ EITTHVAÐ AF SJÁLFBOÐALIÐUM Á LAUGARDAGINN!!
Annars hefur gengið vel undanfarið og frábært að hafa komið regnvatnslögnum og skólplögnum niður fyrir frost.
Malbikun KM lánaði okkur minigröfu til að koma sandinum inn og vinna í gólfinu og Norðurorka lánaði okkur jarðvegsþjöppu, kærar þakkir til þeirra.
Laugardagur, 24 Október 2009 15:46

Þakkir

Þökkum þeim sem mættu í dag (laugard) fyrir hjálpina við að koma tveim stórum gluggum í á efri hæð. Á myndinni má sjá dæmigerðan sjálfboðaliða með verkfæri í hönd við einn af gluggunum sem settir voru í núna.
Föstudagur, 16 Október 2009 09:58

Gluggaísetning

Nú eru allir minni gluggar komnir í á efri hæðinni og þökkum Steypusögun Norðurlands fyrir að koma í hvelli og saga úr einu gati sem var of lítið. Á morgun Laugardag (17.10) stendur svo til að koma stæstu gluggunum í á efri hæðinni og ekki væri verra ef einhverjir gætu komið og aðstoðað.
Sunnudagur, 04 Október 2009 00:03

Kjarnakonur

Í dag laugard 3 okt komu nokkrar kjarnakonur úr mótorhjólaklúbbnum MC Nornir að hjálpa við safnið og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Í næstu viku er svo stefnt á að byrja á gluggaísetningu og ekki væri verra ef einhverjir myndu kíkja við og hjálpa við það. Það væri spennandi að geta lokað húsinu sem fyrst fyrir veturinn.
Föstudagur, 17 Júlí 2009 18:11

Vinnudagur

Nú er búið að hífa forsteyptu einingarnar á stóra húsið og á morgun Laugardag (17.07) ætlum við nokkur að hittast um hálf ellefu að vinna. Það er nóg að gera og eftir daginn er sjálfboðaliðum boðið í grill heim til safnstjóra. Allir velkomnir því það er nóg að gera.
Þriðjudagur, 14 Júlí 2009 13:31

Hjálp!

Nú sárvantar sjálfboðaliða næstu daga og næstu helgi. Til stóð að hífa forsteyptu plöturnar á þakið á fimmtudag en við mistum smiðina í annað verk sem liggur mikið á hjá SS.Byggir. Ef einhverjir sjálboðaliðar fást til að hjálpa til við að stilla stoðum undir á morgun (miðvd 15.07) þá getum við haldið áætlun og lokað stóra húsinu á fimmtud. Næstu helgi er svo hugmynd að hafa vinnuhelgi, grilla og hafa gaman, ef það gengur þá getum við grillað á efri hæðinni fyrir gesti á hjóladögum sem eru helgina eftir. Endilega hafið samband og leggið ykkar að mörkum ef þið hafið möguleika, það munar um allt.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.     S: 8663500
 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon