Heim Sýna efni eftir merki: Sýning
Sunnudagur, 02 Ágúst 2009 00:03

Ýmsar fréttir

Hjóladagar gengu vel en hefðu mátt vera betur sóttir, kennum við þar ofbeldi veðurstofunnar um sem spáði alla vikuna snjókomu og frostmarki á Akureyri, en þó fór svo að við grilluðum pylsur við safnið á föstudeginum í sól og var það vel sótt. Húsið var opið fyrir gesti og kom það mörgum á óvart hvað þetta er komið langt.

Einhver skildi eftir hluta af hjólinu sínu á leið í burtu og getur sótt til safnstjóra hliðarhlífina af suzuki Volusia.

Á föstudagskvöldið voru styrktartónleikar í Sjallanum og fram komu Rúnar Eff, Nursing a semi og Provoke, mæting var ekki með besta móti og hefðum við viljað sjá fjöldan sem mætti í pylsurnar fyrr um daginn. Á laugardeginum var mikið húllumhæ á ÚA planinu og mikið að gerast, sölutjöld, swap meet, kaffisala, hoppukastali, ökuleikni ofl.Á meðan dagskrá fór fram var ágætis veður en þegar allt var búið kom rigningardemban sem átti að vera alla helgina (samkvæmt veðurstofunni)

Miðvikudagur, 24 Júní 2009 12:18

Sýningin

Sýningin 17. & 18. júní tókst vel og ágætlega mætt. Margir lögðu til mikla vinnu og þökkum við kærlega fyrir alla hjálpina. Tían mætti að kvöldi 18. og grillaði pylsur fyrir sýningargesti sem vel var tekið. Palli fór nokkra rúnta með krakka á Úral herhjólinu. Myndir frá sýningunni koma fljótlega í myndasafnið undir liðnum viðburðir.
Birt í Sýningar
Mánudagur, 15 Júní 2009 23:55

Sýning ofl

Búið er að slá frá langaveggnum og steypa nokkra veggi í viðbót. Í frásláttinn mættu nokkrir sjálfboðaliðar og sumir komu lengra að en aðrir, Steini Tótu "skrapp" norður á hjólinu til að hjálpa til. Það þarf að slá frá þrem veggjum sem fyrst og öll hjálp vel þegin. Nú er allt á fullu við að undirbúa sýninguna sem auglýst er hér að ofan og margir búnir að hjálpa, sérstakar þakkir fá öll fyrirtækin sem búin eru að gefa allt sem þarf til að þetta gangi upp sem fjáröflun.

 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon