Heim Sýna efni eftir merki: Hjóladagar
Miðvikudagur, 22 Júlí 2009 23:52

Hjóladagar nálgast

Það mættu nokkrir sjálfboðaliðar síðustu helgi (17.07)og svo er einn búinn að vinna með safnstjóra síðustu 8 daga, þannig að verkið hefur gengið mjög vel. Búið er að laga til á svæðinu fyrir Hjóladagahelgina næstu helgi (24-07) og verður hægt að rölta um húsið í grillinu á föstudagskvöld og skoða. Svo er næsta verk að leggja rafmagn og járnabinda þakið eftir helgi og gott væri að fá hjálp við það, athugið að það munar um það að kíkja í 1-2 tíma eftir vinnu ef það er hægt. Athugið að það vantar alltaf menn með réttindi á byggingarkrana til að aðstoða.

Nýjar myndir á myndasíðu
Fimmtudagur, 08 Janúar 2009 20:20

Fyrsta skóflustungan af mótorhjólasafni

Fyrsta skóflustungan af motorhjólasafni sem byggja á í minningu Heiðars Jóhannssonar (Heidda #10) var tekin í hádeginu í dag (Laugard 19 júlí 2008) við mikinn fögnuð gesta á Hjóladögum á Akureyri.Notaðar voru tíu samanhlekkjaðar skóflur við gjörninginn en þær voru mannaðar níu mönnum ásamt Heiðari sjálfum (í anda) á þeirri tíundu.
Skóflurnar mönnuðu, bræður Heiðars Jón Dan, Rúnar og Guðmundur Jóhannssynir, ásamt vinum Heiðars Axel Stefáns og Sigurjóni, Stefáni Finnbogasyni og Kristjáni Þór Júlíussyni fyrrverandi bæjarstjóra á Akureyri og Þingmanni,frændum hans Gunna Rúnars og Jóa Rækju safnstjóra,
Safnið sem verður u.þ.b. 800 fermetrar fullbyggt og eru teikningarnar stórglæsilegar.
 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_bygginguna_small_web
    Bygging safnsinns

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon