Nýtt spjallborð
Heimasmíðað þríhjól
Á dögunum lést mikill völundarsmiður á Akureyri er Halldór Guðmundsson hét. Halldór átti heimasmíðað þríhjól með kerru, mikið af gömlum myndum og hjóladóti. Ættingjar Halldórs höfðu samband við safnstjóra og gáfu safninu hjólið og allt sem tengist hjólum úr dánarbúinu og þökkum við kærlega fyrir það. Hjólið er mjög merkilegt og á mikla sögu og því mikill fengur í því.
Hér má sjá myndir af hjólinu í myndasafninu í albúmi sem heitir ýmislegt.
Stór gjöf
1959 var iðnsýning í Reykjavík og kom þar merkilegt tæki frá Tékklandi. Þar var á ferðinni mótorhjól sem heitir Ceseta 175cc, hjólið er 1958 árgerð og mjög sérstakt í útliti. Tryggvi Hjaltason frá Rútsstöðum II keypti tækið nýtt 1959 og ferðaðist á því m.a. til Noregs Danmerkur og Þýskalands. seldi það ca 1965 en hirti það síðan af ruslahaug 1975 þá var það orðið útlítandi eins og það er í dag. Síðan er það búið að liggja inni í geymslu og bíða endurgerðar. Hjólið er nú komið í hendur safnsins til geymslu. Upp úr 1960 var tryggvi að vinna í Danmörk og kynnist konu sem féll fyrir honum (eða hjólinu). Kona þessi heitir Birgit Hjaltason í dag og árangurinn varð sex strákar og ein stelpa og búa Tryggvi og Birgit enn á Rútsstöðum II í eyjafirði. Börnin erfðu hjólaáhuga pabbans og Þar sem fólk í sveit er alið upp í hirðusemi og aðhaldi var engu hent, þannig að á bænum safnaðist upp í gegnum árin mikið af hjólum.

Sýna efni eftir merki: Gömul hjól
