Þriðjudagur, 19 Janúar 2010 23:10
Þakkantar
Þá erum við að setja þakkanta á húsið og næsta skref í þakinu er að einangra og setja dúk. Þakgluggarnir koma á morgun (þriðjud 20.01) og þá er einmitt nákvæmlega eitt ár síðan við byrjuðum að grafa fyrir húsinu. Stóru horngluggarnir á suð-austurhorninu eru komnir úr zinkhúðun og verið er núna að setja lista og pakkningar á þá, þeir ættu að verða tilbúnir mjög fljótlega og þá er húsið loks fokhelt. Verið er að merkja boli með safnalogo og fleiru, en fyrsta upplag er lítið þannig að nú er bara að fylgjast með og panta um leið og þeir eru klárir, það verður tilkynnt hér von bráðar. Nýjar myndir í myndasafni og minni á þetta venjulega, gestabókina, bókina, spjallið og takið eftir að hægt er að setja athugasemdir við fréttir.
Birt í
Bygging safnsinns
Föstudagur, 08 Janúar 2010 13:17
skríður áfram
Byggingin skríður áfram þó hægt sé, það er búið að vera erfitt að vinna á staðnum í undanförnum frosthörkum en þó hefur mikið gerst. Nú eru öll hurðastykkin komin í að framan og á myndinni eru léttveggirnir sem koma undir þakgluggana. Þeir eru í smíðum hjá Logoflex í Reykjavík og ættu að verða tilbúnir í næstu viku. Um helgina stendur til að koma veggjunum upp á þak og glerja stóra gluggan á vesturveggnum. Þá er ekkert eftir til að loka húsinu alveg nema risastóri horngluggin sem er í smíðum hjá Sandblæstri og Málmhúðun og ætti að vera langt komin. Við verðum á staðnum frá hádegi á laugardag ef einhverjir vilja kíkja.
Best að nota tækifærið og þakka sjálboðaliðunum sem unnu í safninu á síðasta ári fyrir alla hjálpina, en frá mars 2009 til áramóta unnu 51 manns 1028 tíma í sjálfboðavinnu sem er glæsilegt.
Best að nota tækifærið og þakka sjálboðaliðunum sem unnu í safninu á síðasta ári fyrir alla hjálpina, en frá mars 2009 til áramóta unnu 51 manns 1028 tíma í sjálfboðavinnu sem er glæsilegt.
Birt í
Bygging safnsinns
Föstudagur, 18 Desember 2009 09:58
Gólfið niðri klárt
Það voru 11 manns sem mættu að morgni miðvikudags í myrkrinu til að steypa gólfið á neðri hæðinni sem er síðasta steypan í húsinu. Guðni múrari og Biggi Guðna mættu úr Reykjavík og Baldur snákur og Raggi frá Sauðárkrók, frá Akureyri mættu svo 7 sjálfboðaliðar. Mjög vel gekk að steypa og um hádegi var öll steypa komin á sinn stað. Í hádeginu hittust svo allir heima hjá safnstjóra í pizzu í boði Greifans, gos í boði Vífilfells og kaffi í boði Nýju kaffibrennslunnar. Klukkan fimm á miðvikudag byrjuðu þeir Guðni, Baldur og Raggi að slípa gólfið og voru þeir að með hléum fram til tíu á fimmtudagsmorgun, útkoman er vægast sagt glæsileg, gólfið er hrikalega slétt og flott sem þýðir að ef ekki eru fjárráð fyrir gólfefnum fyrir opnun, er nóg að bóna það eins og það er. Það eru svona menn sem gera þetta verkefni mögulegt, allir hafa þessir menn nóg að gera í sínu starfi en taka sér samt tíma til að koma norður og gera þetta allt frítt. Jón Dan bauð þeim í læri á miðvikudagskvöld og Anna Hjálmars kom með brauð með kaffinu fyrir alla nóttina. Þakklæti til þess fólks sem leggur sig fram við að hjálpa er erfitt að koma í orð.
Nýjar myndir af gólfsteypunni í myndasafni í albúmi: „bygging safnsins – síðasta steypan“ Minni á bókina í jólapakkann og svo gestabókina og spjallið.
Nýjar myndir af gólfsteypunni í myndasafni í albúmi: „bygging safnsins – síðasta steypan“ Minni á bókina í jólapakkann og svo gestabókina og spjallið.
Birt í
Bygging safnsinns
Mánudagur, 07 Desember 2009 21:40
Allt klárt fyrir síðustu steypu
Þá er gólfplatan niðri tilbúinn fyrir steypu og stefnt er á að steypa hana mánudag eða þriðjudag 14-15 des (gott væri að fá fólk til að hjálpa þann dag). Guðni múrari og félagar stefna á að koma þá og ganga í málið. Þegar það er búið þá er mjög fljótlegt að loka húsinu, þannig að húsið verður að öllum líkindum alveg lokað fyrir jól. Núna er verið að taka inn hitaveituna til að geta sett upp nokkra hitablásara fyrir steypu svo húsið verði örugglega frostfrítt ef veðrið breytist óvænt. Það verður mikill sigur að geta lokað og læst húsinu og verður örugglega haldið eitthvað upp á það í byrjun árs, þá er nú gott að vera búinn að vinna sjálfboðavinnu!
Í öðrum fréttum þá verður safnstjórinn í Reykjavík miðvikudag 9 des og fram á sunnudag 13 des ef það er eitthvað sem fólk vill koma til safnsins eða ræða í sambandi við það
Minni á gestbókina, myndasafnið og spjallið. Enga feimni því ykkar viðbrögð eru það sem drífur þetta áfram og rekur mann í að uppfæra síðuna.
Í öðrum fréttum þá verður safnstjórinn í Reykjavík miðvikudag 9 des og fram á sunnudag 13 des ef það er eitthvað sem fólk vill koma til safnsins eða ræða í sambandi við það
Minni á gestbókina, myndasafnið og spjallið. Enga feimni því ykkar viðbrögð eru það sem drífur þetta áfram og rekur mann í að uppfæra síðuna.
Birt í
Bygging safnsinns
Föstudagur, 27 Nóvember 2009 22:25
Gólfvinna að klárast
Nú er búiða að leggja neysluvatn í gólfplötuna niðri og járnabinda að miklu leiti en ekki er hægt að leggja gólfhitarörinn nema frostið fari niður undir frostmark. Þegar það er búið er okkur ekkert að vanbúnaði að steypa plötuna og loka húsinu alveg. nýjar myndir í myndasafni og munið að bókin fína sem er til sölu hjá okkur til fjáröflunnar er hin besta jólagjöf.
Birt í
Bygging safnsinns
Laugardagur, 21 Nóvember 2009 18:49
Gólfeinangrun búin
8 manns unnu í safninu í allan dag (laugard 21.11.09) og klárað var að einangra gólfið og byrjað að járnabinda. Svakalega góður og skemmtilegur dagur :-) Þökkum þeim sem komu fyrir frábæran dag. Nýjar myndir í myndasafni.
Birt í
Bygging safnsinns
Miðvikudagur, 18 Nóvember 2009 23:52
Gólfeinangrun
Nú er verið að slétta gólfið niðri og einangra á fullu, en til að geta byrjað á járnabindingu strax eftir helgi og grípa næstu hlýindi í að steypa, VERÐUM VIÐ AÐ FÁ EITTHVAÐ AF SJÁLFBOÐALIÐUM Á LAUGARDAGINN!!
Annars hefur gengið vel undanfarið og frábært að hafa komið regnvatnslögnum og skólplögnum niður fyrir frost.
Malbikun KM lánaði okkur minigröfu til að koma sandinum inn og vinna í gólfinu og Norðurorka lánaði okkur jarðvegsþjöppu, kærar þakkir til þeirra.
Annars hefur gengið vel undanfarið og frábært að hafa komið regnvatnslögnum og skólplögnum niður fyrir frost.
Malbikun KM lánaði okkur minigröfu til að koma sandinum inn og vinna í gólfinu og Norðurorka lánaði okkur jarðvegsþjöppu, kærar þakkir til þeirra.
Birt í
Bygging safnsinns
Þriðjudagur, 03 Nóvember 2009 17:54
Skólp og regnvatnslagnir
Nú erum við að leggja skólp og regnvatnslagnir bæði inni og úti sem er fyrsta skrefið í áttina að því að geta steypt gólfið á neðrihæðinni. Búið er að grafa hringinn í kringum húsið og helling inni í því. Píparar frá Haraldi Helgasyni eru núna að leggja á fullu svo að hægt sé að loka skurðunum sem fyrst til að fá ekki frost og snjó í. Eitthvað hefur lítið bólað á sjálfboðaliðum, en nóg er að gera ef einhverjir sjá sér fært að mæta. Nýjar myndir í myndasafni og einnig minni ég á spjallið okkar nýja en þar er líka sölutorg og fleira. Að lokum vil ég benda á gestabókina, endilega að kvitta fyrir komu.
Birt í
Bygging safnsinns
Laugardagur, 24 Október 2009 15:46
Þakkir
Þökkum þeim sem mættu í dag (laugard) fyrir hjálpina við að koma tveim stórum gluggum í á efri hæð. Á myndinni má sjá dæmigerðan sjálfboðaliða með verkfæri í hönd við einn af gluggunum sem settir voru í núna.
Birt í
Bygging safnsinns
Miðvikudagur, 21 Október 2009 11:52
Efri hæð að lokast
Nú er efri hæð að lokast smátt og smátt og eru til dæmis allir gluggar komnir í kaffihúsið. Þökkum sérstaklega öllum sem komu til að koma stærstu gluggunum þar í á laugardag. Næstu daga verður haldið áfram að loka efri hæð en þegar það er búið verður farið annað hvort í gólfið á neðri hæð eða að einangra og loka þakinu. Nýjar myndir í myndasafni.
Birt í
Bygging safnsinns

Sýna efni eftir merki: Framkvæmdir
