Heim Safnið Eldri fréttir Almennar fréttir
Almennar fréttir
Almennar fréttir

Almennar fréttir (10)

Fimmtudagur, 15 Júlí 2010 12:04

Gjöf frá JHM sport

Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með von um að aðrir í sportinu taki það til fyrirmyndar og leggi þessu stóra verkefni lið, þökkum Jóni kærlega fyrir frumkvæðið.
Fimmtudagur, 15 Júlí 2010 12:01

Gjöf frá Sniglum

Á einu og hálfu ári er safnið búið að rísa og ótrúlegt hvað verkefnið er búið að ganga vel. Það er ekki síst að þakka öllum sem standa á bakvið safnið með gjöfum, afsláttum og velvilja. Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar gáfu safninu á dögunum eina milljón sem var hluti ágóða af Burnout sýningunni sem safnið tók þátt í með 12 hjólum.
Fimmtudagur, 20 Maí 2010 00:49

Fréttir

Í byrjun er best að afsaka litla hreyfingu á síðunni, það er ekki laust við að það hafi verið nóg að gera undanfarið og lítill tími til að sitja við tölvu.  Laugardaginn 17.04 var sjálfboðaliðum boðið í smá hressingu sem samanstóð af pizzu, drykkjum og Eric Clapton tribute-band inni á safni. Það mætti góður hópur fólks sem skemmti sér vel saman.  Sýningin í borginni tókst vel og var glæsileg í alla staði, hefði mátt koma meira af fólki en umtalað var hvað hjóladeildin var vel uppsett og mikið af sérstökum, flottum gömlum hjólum sem mörg hafa aldrei áður verið sýnd opinberlega. Bar þar af Henderson hjólið hans Gríms sem sópaði til sín verðlaunum, enda stórkostlegur gripur. Safnið var með 12 hjól á sýningunni og sér svæði og mun fá hluta af aðgangeyri, upphæð verður tilkynnt hér þegar uppgjör er klárt.
Föstudagur, 16 Apríl 2010 17:42

Sjálfboðaliðar athugið

Á morgun laugardag 17.04 kl 19 er þeim sem unnið hafa í sjálfboðavinnu við safnið boðið í pizzu og drykk til að fagna því hvað langt byggingin er komin á stuttum tíma. Sjálfboðaliðar hafa skilað 1644 klukkustundum í vinnu frá byrjun og það er þeim að þakka hvað þetta er komið langt. Í sumar höldum við svo boð fyrir fyrirtæki og styrktaraðila. Þökkum þeim fyrirtækjum sérstaklega sem koma að boðinu. Nýja kaffibrennslan, Vífilfell, Kaldi, Kexsmiðjan ofl.
Sunnudagur, 20 Desember 2009 14:41

Styrkur frá bæjarráði

Nú eru gluggar að fara í neðri hæðina og eru allir minni gluggarnir komnir í, 9stk. Eftir helgi reynum við svo að koma hurðarstykkjunum í. Stóru horngluggarnir eru svo í smíðum og verða tilbúnir einhvern næstu daga. Hér á eftir er frétt tekin beint af síðu vikudags: Bæjarráð styrkir Mótorhjóla- safnið á Akureyri föstudagur 18.des.09 09:50 Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að styrkja Mótorhjólasafnið um eina milljón króna á ári í þrjú ár. Mótorhjólasafnið var stofnað í desember 2007, til minningar um Heiðar Þ. Jóhannsson, sem lést í hörmulegu bifhjólaslysi sumarið 2006. Mótorhjólasafnið fékk einnig styrk að upphæð 700.000 krónur úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA í byrjun nóvember sl., vegna uppbyggingar safnsins. Uppsteypu hússins er lokið og framundan er að loka því. Ekki sér fyrir endann á verkefninu en stefnt er að því að taka hluta hússins…
Þriðjudagur, 03 Nóvember 2009 17:34

Styrkur frá KEA

Úthlutað var í dag þriðjudag 3.11.2009 úr menningar og viðurkenningarsjóði KEA og var Mótorhjólasafninu úthlutað 700.000.- til uppbyggingar safnsins og þökkum við kærlega fyrir svo myndarlegan styrk.
Sunnudagur, 02 Ágúst 2009 00:03

Ýmsar fréttir

Hjóladagar gengu vel en hefðu mátt vera betur sóttir, kennum við þar ofbeldi veðurstofunnar um sem spáði alla vikuna snjókomu og frostmarki á Akureyri, en þó fór svo að við grilluðum pylsur við safnið á föstudeginum í sól og var það vel sótt. Húsið var opið fyrir gesti og kom það mörgum á óvart hvað þetta er komið langt. Einhver skildi eftir hluta af hjólinu sínu á leið í burtu og getur sótt til safnstjóra hliðarhlífina af suzuki Volusia. Á föstudagskvöldið voru styrktartónleikar í Sjallanum og fram komu Rúnar Eff, Nursing a semi og Provoke, mæting var ekki með besta móti og hefðum við viljað sjá fjöldan sem mætti í pylsurnar fyrr um daginn. Á laugardeginum var mikið húllumhæ á ÚA planinu og mikið að gerast, sölutjöld, swap meet, kaffisala, hoppukastali, ökuleikni ofl.Á meðan dagskrá fór fram var ágætis veður…
Mánudagur, 29 Júní 2009 13:21

Heimasmíðað þríhjól

Á dögunum lést mikill völundarsmiður á Akureyri er Halldór Guðmundsson hét. Halldór átti heimasmíðað þríhjól með kerru, mikið af gömlum myndum og hjóladóti. Ættingjar Halldórs höfðu samband við safnstjóra og gáfu safninu hjólið og allt sem tengist hjólum úr dánarbúinu og þökkum við kærlega fyrir það. Hjólið er mjög merkilegt og á mikla sögu og því mikill fengur í því. Hér má sjá myndir af hjólinu í myndasafninu í albúmi sem heitir ýmislegt.
Mánudagur, 29 Júní 2009 12:56

Stór gjöf

1959 var iðnsýning í Reykjavík og kom þar merkilegt tæki frá Tékklandi. Þar var á ferðinni mótorhjól sem heitir Ceseta 175cc, hjólið er 1958 árgerð og mjög sérstakt í útliti. Tryggvi Hjaltason frá Rútsstöðum II keypti tækið nýtt 1959 og ferðaðist á því m.a. til Noregs Danmerkur og Þýskalands. seldi það ca 1965 en hirti það síðan af ruslahaug 1975 þá var það orðið útlítandi eins og það er í dag. Síðan er það búið að liggja inni í geymslu og bíða endurgerðar. Hjólið er nú komið í hendur safnsins til geymslu. Upp úr 1960 var tryggvi að vinna í Danmörk og kynnist konu sem féll fyrir honum (eða hjólinu). Kona þessi heitir Birgit Hjaltason í dag og árangurinn varð sex strákar og ein stelpa og búa Tryggvi og Birgit enn á Rútsstöðum II í eyjafirði. Börnin erfðu hjólaáhuga pabbans…
Mánudagur, 11 Maí 2009 23:15

Nýjar fréttir

PylsupartýFöstudaginn 15. maí n.k. hefði Heiddi félagi okkar orðið 55 ára. Af því tilefni ætlum við að efna til smá samkomu. Við ætlum að hittast á torginu kl. 19:30, fara smá ökuferð um áttaleitið og hittast svo og grilla pylsur við Mótorhjólasafnið um 20:30. Komið verður við upp í kirkjugarði. Allir eru velkomnir hjólandi, bílandi og gangandi. MótorhjólasafniðSafnið okkar gengur vel og viljum við hvetja fólk sem er til í einhverja sjálfboðavinnu að hafa samband eða skrá sig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þessa dagana erum við að járnabinda gólfið á efri hæðinni og stefnum á að steypa þá plötu í næstu viku svo hægt verði að klára uppsteypu á húsinu. MótormessaMótormessa verður kl. 11:00 á sunnudag í Glerárkirkju og boðið verður upp á ódýra súpu eftir messu, ágóði af súpunni rennur óskertur til Safnsins. AðalfundurEins og fram kom í síðasta fjöldaskeyti verður…
  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






Nýtt á spjallinu

Meira...


 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon