Styrktaraðilar
Uppbygging Mótorhjólasafns Íslands væri okkur ekki fær nema með astoð góðra manna. Það sem gerir þetta verkefni svo frábært eru jákvæð viðbrögð þeirra aðila sem leitað er til, og fá þeir miklar þakkir fyrir. Fjöldi fyrirtækja sem og einstaklinga hefur lagt okkur lið hvort heldur er við uppbyggingu safnsinns og/eða með safna munum. Við viljum eindregið benda fólki á að við þiggjum alla muni sem tengjast mótorhjólum á einhvern hátt, og munið að ljósmyndir, sögur o.þ.h. eru líka heimildir. Svo næst þegar þú lagar til í geymslunni eða skúrnum og hrasar um eitthvað mótorhjólatengt, hafðu okkur þá í huga. Á meðan við byggjum upp safnahúsið er sjálfboðavinna og byggingarefni líka vel þegnar gjafir.
Við viljum einnig benda á söfnunarreikning Mótorhjólasafns Íslands sem er 0162-26-10026 Kt:601207-2060. Margt smátt gerir eitt stórt og okkur munar um allt til að geta látið draum Heidda um veglegt mótorhjólasafn á Íslandi rætast.
Hér má sjá helstu styrktaraðilana sem eru að hjálpa okkur við uppbyggingu safnsinns með vinnuframlögum, gjöfum, afsláttum og góðum verðum.



























