Heim Safnið Eldri fréttir
Eldri fréttir
Fimmtudagur, 05 Ágúst 2010 11:35

Vantar aðstoð

Nú eru hurðirnar á neðri hæðina komnar í hús og okkur vantar smið til að hjálpa okkur við að koma þeim í. Einnig verður að dreifa úr mölinni á þakinu fyrir veturinn. Það verður að dreifa úr henni á höndum þar sem engin verkfæri má nota á þakdúkinn, þetta er ekki erfitt verk en þetta er seinlegt og vinnst hraðar ef einhverjir koma og hjálpa. Þar sem fiskidagurinn er um næstu helgi verður erfitt að fá fólk þá, þannig að stefnan er að gera þetta í næstu viku og munum við verða á þakinu frá kl 16 alla næstu viku (fer reyndar aðeins eftir veðri) og endilega að kíkja aðeins, það munar um hvern klukkutíma sem er gefin.
Fimmtudagur, 05 Ágúst 2010 11:19

Hjóladagar

Hjóladagar tókust með ágætum og mættu yfir 200 manns inn á safn á föstudagskvöldinu. Katý bakaði vöflur eins og herforingi og allir fengu kaffi eða gos. Á laugardeginum var svo flott dagskrá á planinu hjá Brim og þar var góð mæting í góðu veðri. Um kvöldið hittust svo flestir í Sjallanum á balli með Sniglabandinu sem var frábært hjá þeim að vanda. Tían á miklar þakkir skilið, og eins allir sem komu að. Það er alveg á hreinu að hjóladagar eru komnir til að vera og stækka á hverju ári.
Fimmtudagur, 15 Júlí 2010 12:04

Gjöf frá JHM sport

Jón Magg hjá JHM sport hafði samband og lagði til 100.000 krónur í safnið með von um að aðrir í sportinu taki það til fyrirmyndar og leggi þessu stóra verkefni lið, þökkum Jóni kærlega fyrir frumkvæðið.
Fimmtudagur, 15 Júlí 2010 12:01

Gjöf frá Sniglum

Á einu og hálfu ári er safnið búið að rísa og ótrúlegt hvað verkefnið er búið að ganga vel. Það er ekki síst að þakka öllum sem standa á bakvið safnið með gjöfum, afsláttum og velvilja. Bifhjólasamtök lýðveldisins Sniglar gáfu safninu á dögunum eina milljón sem var hluti ágóða af Burnout sýningunni sem safnið tók þátt í með 12 hjólum.

Miðvikudagur, 14 Júlí 2010 12:47

Hjóladagar næstu helgi

Þriðjudagur, 15 Júní 2010 00:22

Allir að mæta

Mánudagur, 07 Júní 2010 21:42

Nú styttist óðum í Bíladaga

Nú eru ekki nema 10 dagar í að við ætlum að halda sýningu á neðri hæð safnsins þann 17. júní. Allt er búið að ganga vel undanfarið og núna er verið að sparsla og grunna veggina, ýmislegt er þó eftir og nú verðum við að fá sjálfboðaliða næstu daga  og næstu helgi til að hjálpa. Það á eftir að ganga frá lýsingu, pússa og bóna gólfin, laga til og týna rusl úti ofl. Einnig á eftir að þrífa helling af hjólum og koma þeim inn á safn. Byggingafélagið Hyrna á Akureyri hefur ákveðið að gefa safninu innihurðirnar og þökkum við þeim mikið fyrir það. Endilega hafið samband ef þið getið hjálpað næstu daga í síma 8663500



Fimmtudagur, 20 Maí 2010 00:49

Fréttir

Í byrjun er best að afsaka litla hreyfingu á síðunni, það er ekki laust við að það hafi verið nóg að gera undanfarið og lítill tími til að sitja við tölvu.  Laugardaginn 17.04 var sjálfboðaliðum boðið í smá hressingu sem samanstóð af pizzu, drykkjum og Eric Clapton tribute-band inni á safni. Það mætti góður hópur fólks sem skemmti sér vel saman.
 Sýningin í borginni tókst vel og var glæsileg í alla staði, hefði mátt koma meira af fólki en umtalað var hvað hjóladeildin var vel uppsett og mikið af sérstökum, flottum gömlum hjólum sem mörg hafa aldrei áður verið sýnd opinberlega. Bar þar af Henderson hjólið hans Gríms sem sópaði til sín verðlaunum, enda stórkostlegur gripur. Safnið var með 12 hjól á sýningunni og sér svæði og mun fá hluta af aðgangeyri, upphæð verður tilkynnt hér þegar uppgjör er klárt.

Þriðjudagur, 27 Apríl 2010 23:21

Mótorsportsýning ofl

Mikil og flott dagskrá er á höfuðborgarsvæðinu í sambandi við 1. mai og verður safnið með 10 hjól, myndir ofl á risa mótorsportsýningu og mun fá hluta ágóða hennar, hér á eftir er dagskráin í heild sinni.

Dagskrá 1. maí 2010 – Látum í okkur heyrast !

 

Hópakstur mótorhjólafólks 1. maí
Þann 1. maí hefur um árabil verið haldin forvarnardagur Snigla með hópkeyrslu um borgina til að minna aðra vegfarendur á að mótorhjólin eru komin út á göturnar. Þetta ár er engin undantekning og er ætlunin nú sem fyrr að minna rækilega á okkur á götum borgarinnar og á sama tíma vekja athygli á málstað okkar en fyrir alþingi liggur frumvarp til nýrra umferðarlaga, þar sem lítið tillit er tekið til athugasemda mótorhjólamanna.
Safnast verður saman á Laugaveginum frá klukkan 10:30, hann fylltur af mótorhjólum upp úr öllu (Laugarvegur verður lokaður umferð á meðan) Keyrslan sjálf leggur af stað 11:30 niður Bankastræti og þaðan um Vonarstræti milli alþingis og ráðhúss Reykjavíkur, þar sem ætlunin er að láta aðeins heyrast í hjólunum og / eða flauta til að vekja athygli á málstað okkar. Leiðin liggur svo um Hringbraut, Bústaðaveg, Kringlumýrarbraut og Reykjanesbraut áður en keyrslan endar í Kauptúni gengt IKEA.

 

Tilbúinn árekstur

Um kl 13:00 á 1 maí verður mótorhjól látið falla úr 10 metra hæð til að líkja eftir árekstri mótorhjóls við fastan hlut á um það bil 50 km/klst. Fallið ætti að sýna vel höggið við árekstur mótorhjóls.
Hjólið verður til sýnis eftir „áreksturinn“ á sýningunni Burnout 2010 og „droppið“ verður myndað á high speed video vélar að hætti Mythbusters.

 

Íslandsmeistaramótið í hjólafimi - vegleg verðlaun
Klukkan 14:00 1. maí verður haldið Íslandsmeistaramót í hjólafimi. Keppt verður í tímamældri þrautabraut, þar sem úrslitin ráðast á tíma og tækni, en refsistig verða gefin fyrir villur í brautinni.  Keppt verður á 125cc hjólum sem verða á svæðinu til að tryggja jafnræði.
Verðlaunin eru ekki af verri endanum  
1. Verðlaun – 60.000 kr. Bensín úttekt frá Orkunni
2. Verðlaun – Hjálmur frá Suzuki umboðinu
3. Verðlaun – 20.000 kr. Gjafabréf frá IKEA
Stigahæsta kona – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Stigahæsti karl – Dagsferð með Biking Viking mótorhjólaleigunni
Hægt er að skrá sig til keppni með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða á staðnum fyrir keppni. Skilyrði fyri þátttöku er að vera með mótorhjólapróf.

 

Glæsileg sýning

Dagana 30. apríl til 2. maí verður haldin Burnouthelgin 2010 sem er samstarfsverkefni Snigla, Kvartmíluklúbbsinns og BÍKR. Burnouthelgin 2010 mun bjóða upp á dagskrá við allra hæfi og þar á meðal sýningarviðburð sem verður sennilega sá stærsti síðan Sýningarhöllin Ártúnshöfða var og hét. BÍKR mun standa fyrir brautarrallý af bestu gerð og fleiri uppákomum á Samskipasvæðinu við Holtagarða.  Á sýningunni verða sýnd um 200 tæki, sportbílar, kvartmílutæki og þar af um 100 mótorhjól á tæplega 8000 fermetrum.
Gamalt og sérstakt er markmið Snigla með mótorhjólahluta sýningarinnar en mótorhjól verða sýnd á um 2500 fermetrum og markmiðið að draga fram bæði gömul og sérstök mótorhjól. Á  sýningunni verða margir fallegir gripir sem sumir hverjir hafa ekki verið sýndir áður svo sem Hendeson 1918 gert upp af Grími Jónssini. Ýrr í Tatoo bike verður með Airbrush á sýningunni og sprautar og selur boli. Einnig verða hjól sem hafa verið skreytt með Airbrush á sýningunni. Kynning verður á Mótorhjólasafni Íslands og margir gripir safnsins á svæðinu.
Innkoma Snigla af þessari sýningu mun öll renna til Mótorhjólasafns íslands (www.motorhjolasafn.is) og forvarnarverkefna á vegum umferðarnefndar samtakanna. Umferðarnefnd mun meðal annars dreifa límmiðum með áletruninni „Sérðu mótorhjól? – Líttu aftur!“ til að setja í bílrúður á sýningunni.

Ef þú hefur áhuga á að sýna hjól á sýningunni, hafðu samband við Berg í Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Biker Ball

Eftir að hafa hjólað frá okkur mest allt vit í hópkeyrslunni um daginn þá ætlum við að skemmta frá okkur því viti sem eftir er að kvöldi 1. maí á Players Kópavogi. Rokk/blues bandið Síðasti Séns leikur fyrir dönsum og djammi með DJ Mikkólf sér til halds og trausts.

Miðaverði hefur verið stillt í hóf og inn kostar litlar 1500 krónur íslenskar. Ekki þýðir að borga með erlendum gjaldeyri, við komust hvort eð er ekkert út til að eyða honum.  Bandið samanstendur af þaulreyndum djammhundum sem marga fjöruna hafa sopið og DJ Mikkólfur hefur sopið þær tvær eða þrjár, enda fjöru áhuga maður mikill.

Rokk, Ról og Mótorhjól.


Föstudagur, 16 Apríl 2010 17:42

Sjálfboðaliðar athugið

Á morgun laugardag 17.04 kl 19 er þeim sem unnið hafa í sjálfboðavinnu við safnið boðið í pizzu og drykk til að fagna því hvað langt byggingin er komin á stuttum tíma. Sjálfboðaliðar hafa skilað 1644 klukkustundum í vinnu frá byrjun og það er þeim að þakka hvað þetta er komið langt. Í sumar höldum við svo boð fyrir fyrirtæki og styrktaraðila. Þökkum þeim fyrirtækjum sérstaklega sem koma að boðinu. Nýja kaffibrennslan, Vífilfell, Kaldi, Kexsmiðjan ofl.
Föstudagur, 09 Apríl 2010 08:57

Þakeinangrun og fleiri fréttir

Á fimmtudag (8. Apríl) sást loks til tveggja úrkomulausra daga í röð á Akureyri og þá var vaðið í að setja dúk á fyrsta þakið af fjórum. Á þakið kemur fyrst þolplast, svo tvö lög af plasteinangrun  og eitt lag af ull, síðan dúkurinn og síðast tíu sentimetra lag af möl. Næstu daga verður haldið áfram að grípa úrkomulausa daga og vinna á fulllu í þakinu þar sem það er grundvöllur þess að geta notað húsið í sumar. Óskum við þess að fólk komi og hjálpi ef tök eru á, þó sérstaklega þegar farið verður í stóra þakið því það verður að vinna hratt og á stuttum tíma. Inni er búið að grófsparsla veggina niðri en ekki er hægt að fínsparsla eða setja gips á milliveggi fyrr en þakið er þétt, þannig að allt veltur á þakinu þessa dagana.

Næstu helgi er áætlað að bjóða þeim sjálboðaliðum sem hjálpað hafa í pizzu og bjór í safninu til að fagna því hvað langt verkið er komið á aðeins 14 mánuðum, nánar auglýst hér á síðunni í vikunni. Í vor verður svo haldið boð fyrir  styrktaraðila og fyrirtæki sem lagt hafa fram fé, vörur og fleira. Stefnt er að því að fullri alvöru að opna neðri hæðina á Bíladögum 17. Júní með sýningu.

Miðvikudagur, 31 Mars 2010 23:56

Milliveggir, wc ofl

Allt er tilbúið fyrir þakvinnuna nema veðrið, það vantar tvo þurra daga án vinds til að geta byrjað á því en einangrunin, þakdúkurinn og allt sem til þarf er tilbúið á staðnum og verður farið í þakið um leið og veður leyfir. Á meðan er nóg að gera inni, milliveggir eru á leið upp og klósett tengd, einnig er verið að grófsparsla veggi og múra í kringum glugga. Um páskahelgina verður unnið eitthvað flesta dagana og allir velkomnir að kíkja við að hjálpa eða bara að fá kaffisopa. Ef þú ert að spá i að kíkja er best að hringja í 8663500 til að vita hvenær við verðum á staðnum.
Föstudagur, 05 Mars 2010 10:05

Einangrun, þak ofl

Nú erum við komnir með skæralyftu sem nær alla leið upp á þak, sem þýðir að lítið mál verður að klára að einangra húsið og koma einangrun og dúk upp á þak, hann Óli í Pallaleigunni ehf lánar okkur hana endurgjaldslaust og á hann miklar þakkir fyrir. Næst þegar veðurspáin sýnir úrkomuleysi í 2-3 daga munum við reyna að byrja á þakinu, sem er úrslitaatriði ef við ætlum að nota húsið eitthvað í sumar. Við verðum að vinna á morgun laugardag frá 11 og nú er komin hiti á húsið og flott kaffiaðstaða inni, nú er ekki hægt að afsaka sig með veðrinu eða kulda, bara mæta og hjálpa.
Þriðjudagur, 23 Febrúar 2010 21:44

Gólfhiti settur á

Þá er komin einangrun á miðhúsið og gólfhitanum verður hleypt á þann hluta á morgun (miðvikudag 24-02) Þá er komin betri vinnu og kaffiaðstaða inni í húsinu. Stefnt er á að koma ullinni allri á sem fyrst til að geta hleypt hita á alla neðri hæðina. Gott væri að fá einhverja til að hjálpa næsta laugardag við það. þegar hitin er komin á, er hægt að gera svo margt, t.d. að smíða milliveggi og setja upp vaska og salerni.
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 17:27

!!! Fokhelt

Þá er loks hægt að segja að húsið sé fokhelt :-) Stóri gluggin á suð-austur horninu er lokaður.
Mánudagur, 08 Febrúar 2010 13:46

Einangrun næsta skref

Hér sést á einangruninni á vesturhliðinni hvað jarðvegurinn fer langt upp á húsið í lokafrágangi lóðar. Annars er ýmislegt búið að gerast á síðustu vikum, gengur hægt en örugglega. Þakgluggarnir eru komnir en eru ekki festir endanlega því þakdúkurinn fer undir þá. Stóri hornglugginn á suð-austur hlið er komin í en það á eftir að glerja hann, glerið er tilbúið en vegna gúmmípakkningana verður að vera frostlaust við þá vinnu. Búið er að keyra möl og slétta í kringum húsið til að auðvelda vinnu við einangrun, sem er næsta skref. Ákveðið hefur verið að leggja áherslu á neðri hæð með von um að geta notað húsið eitthvað fyrir sýningar eða uppákomur næsta sumar og þá jafnvel að opna safnið að einhverju leiti næsta haust eða vetur.
Þriðjudagur, 19 Janúar 2010 23:10

Þakkantar

Þá erum við að setja þakkanta á húsið og næsta skref í þakinu er að einangra og setja dúk. Þakgluggarnir koma á morgun (þriðjud 20.01) og þá er einmitt nákvæmlega eitt ár síðan við byrjuðum að grafa fyrir húsinu. Stóru horngluggarnir á suð-austurhorninu eru komnir úr zinkhúðun og verið er núna að setja lista og pakkningar á þá, þeir ættu að verða tilbúnir mjög fljótlega og þá er húsið loks fokhelt. Verið er að merkja boli með safnalogo og fleiru, en fyrsta upplag er lítið þannig að nú er bara að fylgjast með og panta um leið og þeir eru klárir, það verður tilkynnt hér von bráðar.  Nýjar myndir í myndasafni og minni á þetta venjulega, gestabókina, bókina, spjallið og takið eftir að hægt er að setja athugasemdir við fréttir.
Föstudagur, 08 Janúar 2010 13:17

skríður áfram

Byggingin skríður áfram þó hægt sé, það er búið að vera erfitt að vinna á staðnum í undanförnum frosthörkum en þó hefur mikið gerst. Nú eru öll hurðastykkin komin í að framan og á myndinni eru léttveggirnir sem koma undir þakgluggana. Þeir eru í smíðum hjá Logoflex í Reykjavík og ættu að verða tilbúnir í næstu viku. Um helgina stendur til að koma veggjunum upp á þak og glerja stóra gluggan á vesturveggnum. Þá er ekkert eftir til að loka húsinu alveg nema risastóri horngluggin sem er í smíðum hjá Sandblæstri og Málmhúðun og ætti að vera langt komin. Við verðum á staðnum frá hádegi á laugardag ef einhverjir vilja kíkja.
Best að nota tækifærið og þakka sjálboðaliðunum sem unnu í safninu á síðasta ári fyrir alla hjálpina, en frá mars 2009 til áramóta unnu 51 manns 1028 tíma í sjálfboðavinnu sem er glæsilegt.
Sunnudagur, 20 Desember 2009 14:41

Styrkur frá bæjarráði

Nú eru gluggar að fara í neðri hæðina og eru allir minni gluggarnir komnir í, 9stk. Eftir helgi reynum við svo að koma hurðarstykkjunum í. Stóru horngluggarnir eru svo í smíðum og verða tilbúnir einhvern næstu daga.
Hér á eftir er frétt tekin beint af síðu vikudags:

Bæjarráð styrkir Mótorhjóla- safnið á Akureyri

föstudagur 18.des.09 09:50
Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að styrkja Mótorhjólasafnið um eina milljón króna á ári í þrjú ár. Mótorhjólasafnið var stofnað í desember 2007, til minningar um Heiðar Þ. Jóhannsson, sem lést í hörmulegu bifhjólaslysi sumarið 2006. Mótorhjólasafnið fékk einnig styrk að upphæð 700.000 krónur úr Menningar- og viðurkenningasjóði KEA í byrjun nóvember sl., vegna uppbyggingar safnsins. Uppsteypu hússins er lokið og framundan er að loka því. Ekki sér fyrir endann á verkefninu en stefnt er að því að taka hluta hússins í notkun næsta vor. Húsið er tveggja hæða, tæpir 800 fermetrar að stærð og staðsett á Krókeyri.
Föstudagur, 18 Desember 2009 09:58

Gólfið niðri klárt

Það voru 11 manns sem mættu að morgni miðvikudags í myrkrinu til að steypa gólfið á neðri hæðinni sem er síðasta steypan í húsinu. Guðni múrari og Biggi Guðna mættu úr Reykjavík og Baldur snákur og Raggi frá Sauðárkrók, frá Akureyri mættu svo 7 sjálfboðaliðar. Mjög vel gekk að steypa og um hádegi var öll steypa komin á sinn stað. Í hádeginu hittust svo allir heima hjá safnstjóra í pizzu í boði Greifans, gos í boði Vífilfells og kaffi í boði Nýju kaffibrennslunnar. Klukkan fimm á miðvikudag byrjuðu þeir Guðni, Baldur og Raggi að slípa gólfið og voru þeir að með hléum fram til tíu á fimmtudagsmorgun, útkoman er vægast sagt glæsileg, gólfið er hrikalega slétt og flott sem þýðir að ef ekki eru fjárráð fyrir gólfefnum fyrir opnun, er nóg að bóna það eins og það er. Það eru svona menn sem gera þetta verkefni mögulegt, allir hafa þessir menn nóg að gera í sínu starfi en taka sér samt tíma til að koma norður og gera þetta allt frítt. Jón Dan bauð þeim í læri á miðvikudagskvöld og Anna Hjálmars kom með brauð með kaffinu fyrir alla nóttina. Þakklæti til þess fólks sem leggur sig fram við að hjálpa er erfitt að koma í orð.
Nýjar myndir af gólfsteypunni í myndasafni í albúmi: „bygging safnsins – síðasta steypan“  Minni á bókina í jólapakkann og svo gestabókina og spjallið.
Mánudagur, 07 Desember 2009 21:40

Allt klárt fyrir síðustu steypu

Þá er gólfplatan niðri tilbúinn fyrir steypu og stefnt er á að steypa hana mánudag eða þriðjudag 14-15 des (gott væri að fá fólk til að hjálpa þann dag). Guðni múrari og félagar stefna á að koma þá og ganga í málið. Þegar það er búið þá er mjög fljótlegt að loka húsinu, þannig að húsið verður að öllum líkindum alveg lokað fyrir jól. Núna er verið að taka inn hitaveituna til að geta sett upp nokkra hitablásara fyrir steypu svo húsið verði örugglega frostfrítt ef veðrið breytist óvænt. Það verður mikill sigur að geta lokað og læst húsinu og verður örugglega haldið eitthvað upp á það í byrjun árs, þá er nú gott að vera búinn að vinna sjálfboðavinnu!
 
Í öðrum fréttum þá verður safnstjórinn í Reykjavík miðvikudag 9 des og fram á sunnudag 13 des ef það er eitthvað sem fólk vill koma til safnsins eða ræða í sambandi við það

Minni á gestbókina, myndasafnið og spjallið. Enga feimni því ykkar viðbrögð eru það sem drífur þetta áfram og rekur mann í að uppfæra síðuna.
Föstudagur, 27 Nóvember 2009 22:25

Gólfvinna að klárast

Nú er búiða að leggja neysluvatn í gólfplötuna niðri og járnabinda að miklu leiti en ekki er hægt að leggja gólfhitarörinn nema frostið fari niður undir frostmark. Þegar það er búið er okkur ekkert að vanbúnaði að steypa plötuna og loka húsinu alveg. nýjar myndir í myndasafni og munið að bókin fína sem er til sölu hjá okkur til fjáröflunnar er hin besta jólagjöf.
Laugardagur, 21 Nóvember 2009 18:49

Gólfeinangrun búin

8 manns unnu í safninu í allan dag (laugard 21.11.09) og klárað var að einangra gólfið og byrjað að járnabinda. Svakalega góður og skemmtilegur dagur :-) Þökkum þeim sem komu fyrir frábæran dag. Nýjar myndir í myndasafni.
Miðvikudagur, 18 Nóvember 2009 23:52

Gólfeinangrun

Nú er verið að slétta gólfið niðri og einangra á fullu, en til að geta byrjað á járnabindingu strax eftir helgi og grípa næstu hlýindi í að steypa, VERÐUM VIÐ AÐ FÁ EITTHVAÐ AF SJÁLFBOÐALIÐUM Á LAUGARDAGINN!!
Annars hefur gengið vel undanfarið og frábært að hafa komið regnvatnslögnum og skólplögnum niður fyrir frost.
Malbikun KM lánaði okkur minigröfu til að koma sandinum inn og vinna í gólfinu og Norðurorka lánaði okkur jarðvegsþjöppu, kærar þakkir til þeirra.
Þriðjudagur, 03 Nóvember 2009 17:54

Skólp og regnvatnslagnir

Nú erum við að leggja skólp og regnvatnslagnir bæði inni og úti sem er fyrsta skrefið í áttina að því að geta steypt gólfið á neðrihæðinni. Búið er að grafa hringinn í kringum húsið og helling inni í því. Píparar frá Haraldi Helgasyni eru núna að leggja á fullu svo að hægt sé að loka skurðunum sem fyrst til að fá ekki frost og snjó í. Eitthvað hefur lítið bólað á sjálfboðaliðum, en nóg er að gera ef einhverjir sjá sér fært að mæta. Nýjar myndir í myndasafni og einnig minni ég á spjallið okkar nýja en þar er líka sölutorg og fleira. Að lokum vil ég benda á gestabókina, endilega að kvitta fyrir komu.
Þriðjudagur, 03 Nóvember 2009 17:34

Styrkur frá KEA

Úthlutað var í dag þriðjudag 3.11.2009 úr menningar og viðurkenningarsjóði KEA og var Mótorhjólasafninu úthlutað 700.000.- til uppbyggingar safnsins og þökkum við kærlega fyrir svo myndarlegan styrk.
Mánudagur, 26 Október 2009 11:27

Nýtt spjallborð

Langar að benda fólki á nýtt spjallborð mótorhjólasafnsins. Það er von okkar að hér geti fólk með áhuga á gömlum hjólum spjallað saman um gömul hjól og einnig fundið eða selt varahluti sem vantar í uppgerðir. Vekjum athygli á því að ekki þarf innskráningu og spjallið er notendavænt. Þú finnur spjallið okkar hérna eða í flipanum "mótorhjól" ofarlega til hægri hér á síðunni.

Laugardagur, 24 Október 2009 15:46

Þakkir

Þökkum þeim sem mættu í dag (laugard) fyrir hjálpina við að koma tveim stórum gluggum í á efri hæð. Á myndinni má sjá dæmigerðan sjálfboðaliða með verkfæri í hönd við einn af gluggunum sem settir voru í núna.
Miðvikudagur, 21 Október 2009 11:52

Efri hæð að lokast

Nú er efri hæð að lokast smátt og smátt og eru til dæmis allir gluggar komnir í kaffihúsið. Þökkum sérstaklega öllum sem komu til að koma stærstu gluggunum þar í á laugardag. Næstu daga verður haldið áfram að loka efri hæð en þegar það er búið verður farið annað hvort í gólfið á neðri hæð eða að einangra og loka þakinu. Nýjar myndir í myndasafni.
Föstudagur, 16 Október 2009 09:58

Gluggaísetning

Nú eru allir minni gluggar komnir í á efri hæðinni og þökkum Steypusögun Norðurlands fyrir að koma í hvelli og saga úr einu gati sem var of lítið. Á morgun Laugardag (17.10) stendur svo til að koma stæstu gluggunum í á efri hæðinni og ekki væri verra ef einhverjir gætu komið og aðstoðað.
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






Nýtt á spjallinu

Meira...


 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon