Heim Safnið Bygging safnsinns

Á hjóladögum sumarið 2008 var tekin fyrsta skóflustungan að glæsilegri byggingu sem hýsa mun starfsemi safnsinns. Þessi glæsilega bygging er teiknuð af Kollgátu ehf arkitektastofu án endurgjalds. Byggingin er á tveim hæðum og er hönnuð með hagkvæman rekstur safns í huga.

Safnid01

Á neðri hæð eru fjórir sýningarsalir og ætlunin er að í einum þeirra verði fastasýning Heiðars með persónulegum munum hans og  eitthvað af hjólunum hans. Þar eru einnig snyrtingar, skrifstofa, lager og viðgerða og uppgerðaraðstaða fyrir safnahjól.

Safnid02

Á efri hæð eru tveir sýningarsalir og einnig kaffihús og fundaraðstaða sem möguleiki er á að leigja út í minni veislur. Hönnun gerir ráð fyrir að hægt sé að leigja út kaffihúsið og fundarsal með safnið sjálft lokað.

Safnid03

Engar fastar áætlanir eru um byggingarlok, en vonir standa til að húsið verði fokhelt vorið 2009 þannig að hægt sé að innrétta veturinn 2009-2010. Ef allt gengur vel er stefnt að formlegri opnun 15. Mai 2010 sem er afmælisdagur Heidda.

Hægt er að skoða og fylgjast með framkvæmdum í myndasafninu okkar.

Kollgáta merki okt08 - 2 web

  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon