Mótorhjólasafn Íslands
Mótorhjólasafn Íslands var stofnað 20.12.2007 til minningar um Heiðar Þ Jóhannsson sem lést sunnudaginn 2 júlí 2006 í hörmulegu bifhjólaslysi í Öræfasveit á leið heim af landsmóti Snigla sem haldið var að Hrífunesi. Heiðar eða Heiddi eins og hann var ætíð kallaður, var af flestum bifhjólamönnum á Íslandi talinn mesti hjólamaður á landinu, jafnvígur á hvaða hjól sem er.
Heiðar hafði í mörg ár safnað mótorhjólum og hjóla tengdum munum og hafði lengi átt sér þann draum að opna mótorhjólasafn. Heiðar lét eftir sig vel á þriðja tug hjóla og mikið magn bifhjólatengdra hluta. Stofnum mótorhjólasafns Íslands er eins og áður segir til minningar um Heiðar og mun á safninu vera starfrækt sérstök minningar deild þar sem hjól og munir hans verða sýndir og varðveittir.
Safnið
Á hjóladögum á Akureyri sumarið 2008 var tekin fyrsta skóflustungan að glæsilegri 800 fermetra byggingu sem hýsa mun safnið. Notaðar voru tíu samanhlekkjaðar skóflur við gjörninginn en þær voru mannaðar níu mönnum ásamt Heiðari sjálfum (í anda) á þeirri tíundu.
Í dag á safnið nálægt 50 mótorhjól og mikið magn af hjólatengdum munum og ljósmyndum sem spanna alla sögu mótorhjólsins á íslandi.
Starfsemi mótorhjólasafns Íslands
Mótorhjólasafni Íslands er ætlað að sýna og varðveita sögu mótorhjóla á íslandi í máli, munum og myndum ásamt því að varðveita minningu Heidda og það spor sem hann skyldi eftir sig á hjólamenningu landsmanna. Auk hefðbundinnar safnastarfsemi er hugmyndin að skapa athvarf fyrir hjólafólk hvort heldur Akureyringa eða annað hjólafólk á ferð um landið. Meðal þess sem starfrækt verður í tengslum við mótorhjólasafn Íslands er minjagripasala, ráðstefnu/veislusalur, vetrargeymsla á hjólum, sölusýningar og samstarf við umboð, þrifaðstaða fyrir hjól, kaffitería, umferðafræðsla og námskeið, fundaraðstaða ásamt öðrum hugsanlegum jaðarrekstri.
Hollvinafélag safnsins – Tían
Í janúar árið 2007 var Bifhjólaklúbburinn Tían stofnuð og er hún hollvinafélag safnsins. Tían telur í dag um 260 meðlimi sem tilbúnir eru til leggja fram vinnu, aðstoð og/eða stuðla á einn eða annan hátt að uppbyggingu og hagsmunum safnsins. Margir félagsmenn Tíunnar sem og aðrir velunnarar safnsins hafa boðist til að lána safninu hjól sem og aðra gripi til varðveislu eða á einstakar sýningar. Heimasíða Tíunnar
Rekstur
Mótorhjólasafn Íslands er sjálfseignar stofnum sem ætlað er að standa undir rekstri safnsins og annarri starfssemi. Uppbygging safnsins og rekstur þess er að mestu leiti fjármagnaður með framlögum og styrkjum og hafa margir góðir aðilar lagt verkefninu lið.
Umsögn Ferðamálaseturs Íslands
Umsögn Lögreglunar á Akuteyri
Umsögn Snigla
Stjórn mótorhjólasafns Íslands skipa:
Lykil upplýsingar:
Mótorhjóla safn Íslands
Kt. 601207-2060
Ránargata 10
600 Akureyri
Sími 8663500

Safnið
