Heim Safnið Um Safnið

Mótorhjólasafn Íslands

heiddi_passportMótorhjólasafn Íslands var stofnað 20.12.2007 til minningar um Heiðar Þ Jóhannsson sem lést sunnudaginn 2 júlí 2006 í hörmulegu bifhjólaslysi í Öræfasveit á leið heim af landsmóti Snigla sem haldið var að Hrífunesi. Heiðar eða Heiddi eins og hann var ætíð kallaður, var af flestum bifhjólamönnum á Íslandi talinn mesti hjólamaður á landinu, jafnvígur á hvaða hjól sem er.
Heiðar hafði í mörg ár safnað mótorhjólum og hjóla tengdum munum og hafði lengi átt sér þann draum að opna mótorhjólasafn. Heiðar lét eftir sig vel á þriðja tug hjóla og mikið magn bifhjólatengdra hluta. Stofnum mótorhjólasafns Íslands  er eins og áður segir til minningar um Heiðar og mun á safninu vera starfrækt sérstök minningar deild þar sem hjól og munir hans verða sýndir og varðveittir.

Safnið

Á hjóladögum á Akureyri sumarið 2008 var tekin fyrsta skóflustungan að glæsilegri 800 fermetra byggingu sem hýsa mun safnið. Notaðar voru tíu samanhlekkjaðar skóflur við gjörninginn en þær voru mannaðar níu mönnum ásamt Heiðari sjálfum (í anda) á þeirri tíundu.

Í dag á safnið nálægt 50 mótorhjól og mikið magn af hjólatengdum munum og ljósmyndum sem spanna alla sögu mótorhjólsins á íslandi.

Starfsemi mótorhjólasafns Íslands

Mótorhjólasafni Íslands er ætlað að sýna og varðveita sögu mótorhjóla á íslandi í máli, munum og myndum ásamt því að varðveita minningu Heidda og það spor sem hann skyldi eftir sig á hjólamenningu landsmanna. Auk hefðbundinnar safnastarfsemi er hugmyndin að skapa athvarf fyrir hjólafólk hvort heldur Akureyringa eða annað hjólafólk á ferð um landið. Meðal þess sem starfrækt  verður í tengslum við mótorhjólasafn Íslands er minjagripasala, ráðstefnu/veislusalur, vetrargeymsla á hjólum, sölusýningar og samstarf við umboð, þrifaðstaða fyrir hjól, kaffitería, umferðafræðsla og námskeið, fundaraðstaða ásamt öðrum hugsanlegum jaðarrekstri.

Hollvinafélag safnsins – Tían

Í janúar árið 2007 var Bifhjólaklúbburinn Tían stofnuð og er hún hollvinafélag safnsins. Tían telur í dag um 260 meðlimi sem tilbúnir eru til leggja fram vinnu, aðstoð og/eða stuðla á einn eða annan hátt að uppbyggingu og hagsmunum safnsins. Margir félagsmenn Tíunnar sem og aðrir velunnarar safnsins hafa boðist til að lána safninu hjól sem og aðra gripi til varðveislu eða á einstakar sýningar. Heimasíða Tíunnar

Rekstur

Mótorhjólasafn Íslands er sjálfseignar stofnum sem ætlað er að standa undir rekstri safnsins og annarri starfssemi. Uppbygging safnsins og rekstur þess er að mestu leiti fjármagnaður með framlögum og styrkjum og hafa margir góðir aðilar lagt verkefninu lið.

Umsögn Ferðamálaseturs Íslands
Umsögn Lögreglunar á Akuteyri
Umsögn Snigla

Stjórn mótorhjólasafns Íslands skipa:

Jón Dan Jóhannsson Stjórnarformaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Axel Stefánsson Stjórnarmaður
Sigurjón P Stefánsson Stjórnarmaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Stefán Finnbogason Stjórnarmaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Steingrímur Pétursson Stjórnarmaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Gunnar Rúnarsson Varamaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Rúnar Jóhannsson Varamaður Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Jóhann Freyr Jónsson Safnstjóri Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Lykil upplýsingar:

Mótorhjóla safn Íslands
Kt. 601207-2060
Ránargata 10
600 Akureyri
Sími 8663500

  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon