Heim Mótorhjól Furðuleg mótorhjól

Furðuleg mótorhjól í sögunni

Fyrri hluti: Genesis Höfundur: Gunnar Möller

grein_furuhjol_daimler_1Okkur langar að reyna að fjalla hér um nokkur furðuleg hjól í mótorhjóla sögunni. það hlýtur að liggja beinast við að byrja á fyrsta mótorhjólinu. Hver fann upp mótorhjólið? Sá sem yfirleitt er skrifaður fyrir fyrsta mótorhjólinu Gottlieb Daimler sá hinn sami og fór í samstarf við Karl Benz og stofnaði Daimler-Benz fyrirtækið.

Daimler smíðaði hjólið árið 1885 á trégrind sem byggði á hlaupahjóli sem gekk undir nafninu Bone Crusher og þótti afar varhugavet tæki. Hjólið hans Daimlers var reyndar með fjögur hjól þar sem það hafði einskonar fjaðrandi hjálpardekk sínhvormegin. Hjólið var með einstrokks fjórgengisvél með úðablöndungi sem félagi hans Wilhelm Maybach (Sem er líka þekkt nafn í sögu vélanna) hannaði.

Reyndar má nefna eitt hjól sem kom fram aðeins fyrr. Árið 1867 kynnti Sylvester Howard Roper gufuknúið hjól. Tveir strokkar knúðu hjólið áfram og voru stimpilstangir þeirr tengdar beint á afturhjólið líkt og tíðkast á lestum. Tölvert var smíðað af gufuhjólum en þau gengu aldrei undir nafninu “Motorcycle” heldur “Steam Powered Bicycle” eða Gufuknúið reiðhjól. Roper lést árið 1899 þegar hann var að prufukeyra nýtt hjól. (líklega eitt af fyrstu banaslysunum á vélhjóli)

Á þessum árum fór mestur tími í að hanna þriggja og fjögurra hjóla ökutæki, það var nógu erfitt að koma þessum græjum áfram þó þau væru ekki líka sídettandi á hliðina. Þó kom fram eitt merkilegt hjól árið 1892 það var Millet. Það var knúið af fimm strokka stjörnumótor sem þekktur er undir nafninu Gnome Monosoupape. Mótorinn var inni í afturfelgunni og snérist blokkin með afturhjólinu en sveifarásinn vann sem afturöxull.
grein_furuhjol_2
Öll þessi hjól hér á undan voru prufusmíði ekkert af þeim var selt til almennings. Fyrsta hjólið sem fór í almenna sölu var Hildebrand & Wolfmueller árið 1894. Það hjól var með 1488cc tveggja strokka mótor sem gaf út 2,5hp við 250 sn/min. Stimpilstangirnar (eða réttara sagt tengistangir frá stimpilstöngunum) tengdust beint á afturhjólið. Mótirinn var vatnskældur sem var alger nýjung á þessum tíma. Aðeins nokkur hundruð hjól vru smíðuð þau voru dýr og óáræðanleg og seldust því illa.

Franskt fyrirtæki Dedion-Buton hannaði árið 1895 nýja gerð af mótor sem hentaði einstaklega vel í mótorhjól. Þetta var loftkældur fjórgengismótor með rafmagnskveikju, en fram að því hafði yfirleitt verið notað Hot-Tube kveikikerfi sem er einskonar glóðarkerti og var mjög oft til vandræða. Dedion-Buton mótorinn var 138cc og gaf út ½ hestafl. Mótorinn var smurður með því að láta olíu drjúpa í sveifarhúsið og þaðan lak hún niður á jörð. Bæði Harley-Davidson og Indian (og margir fleiri) hermdu eftir þessari hönnun (en Harley var sínu lengst að venja hann af því að æla olíunni niður á jörð). Fyrsta hjólið sem var framleitt og selt í Bandaríkjunum var Orient-Aster (1898) það notaði Astor mótor sem var eftirlíking af Dedion-Buton mótornum. Indian hefja svo framleiðslu 1901 og Harley-Davidson 1902.
grein_furuhjol_3


Annar hluti: Fram og til baka
Höfundur: Wolfgang Frost Sahr

rauttflag_fÞað sem okkur þykir eðlileg hjólahönnun í dag hefur alls ekki alltaf verið svo. Gaman er að skoða hvenær ákveðin tækni festi sig í sessi. Gúmmídekk eða hreinar tréfelgur, glóðarkerti og uppgufunar-blöndungar, staðsetning vélar, gírskipting, felgu-bremsur, hjálpardekk, reiðhjólapedalar, engin fjöðrun eða dempun - allt þetta þótti eðlilegt á fyrstu dögum mótorhjólsins. Reyndar líka sú krafa enskra & þýskra yfirvalda, að ávallt skuli maður með rauðu flaggi ganga á undan vélknúnu farartæki til að vara nærstadda við... 
 
En hvar ætli sé besti staðurinn fyrir vélina?
Eins og Hildebrandt & Wolfmüller reyndi Holden fyrir sér með hjóli þar sem stimpilstangirnar fóru beint í afturhjólið. Þannig var hægt að sleppa keðju, drifskafti eða -reim. Þetta var 4ra sýlindra hjól og hefur eflaust þurft útsjónarsemi ekilsins til að átta sig á því hvenær hann ætlaði að hefja ferð og hvenær að hætta henni, því svo lengi sem vélin var í gangi snérist afturhjólið. Í stoppi gat maður opnað ventlana og ýtt hjólinu þannig áfram.
 
Það er svo önnur saga að brottfluttan þýskan verkfræðing í Coventry langaði að smíða svipuð hjól í eigin verksmiðju. Hann flutti inn nokkur H&W hjól en gafst á endanum upp á þeim. Hann stofnaði í staðinn mótorhjólafyrirtæki sem átti eftir að gera garðinn frægan: Triumph!  Bernardi var ítalskur prófessór sem notaði einfaldlega reiðhjól og skeytti vélinni aftan við (1893). Það hefur hugsanlega ekki verið mjög þægilegt að taka beygjur á þessu apparati...
Þó hafði það þann kost að hægt var að vélvæða allt reiðhjólasafn fjölskyldunnar til skiptis. Og nei, þetta er ekki gufuvél: hún var fjórgengis 260 cc með 0,5 hö.
grein_furuhjol_4 
Með hjóli Werner bræðranna (1900) öðlaðist mótorinn þá staðsetningu sem hann hefur ennþá í dag: í stað pedalanna neðarlega í rammanum. Fyrsta hjól rússnesku bræðranna var reyndar ennþá með vélina fyrir ofan framhjólið, svipað og á Solex skellinöðrum áttunda áratugarins. Með breytingu sinni náðu þeir félagar mun betra jafnvægi í akstri. Uppfinningin seldist eins og heitar lummur og þeir urðu ríkir. Því miður hvatti föðurlandsást þeirra þá til að fjarfesta í rússneskum verðbréfum og þegar Októberbyltingin hófst töpuðu þeir öllu og dóu sárafátækir.
 
Nýja staðsetning mótorsins (innan rammans) var varin höfundarétti, svo aðrir framleiðendur þurftu að borga Werner-bræðrunum vildu þeir hafa vélina á sama stað. Sumir reyndu að sigla í kringum það með því að nota vélina sem hluta af grindinni og láta festi-stangir fara í gegnum sýlinderinn frá stýrislegunni að neðri grindarsamskeytunum.
 
Ennþá voru þó sumir að þreifa fyrir sér með aðrar staðsetningar, eins og Motosacoche. Á myndinn hér að neðan sést ennþá í tannhjól og pedala, enda var meiningin að hægt yrði að skella vélinni beint í  reiðhjólaumgjörð og með því móti átti að vera hægt að útbúa hvaða hjól sem er hjálparkrafti.
grein_furuhjol_5
Um 1920 framleiddi Megola þetta 640 cc keppnishjól með 5 sýlindra stjörnuvél í framhjólinu. Ath. að vélin var ekki kyrr heldur snérist og sá með því til þess að hjólið færðist áfram! Hjólið var ekki útbúið gírkassa - vélaraflið færðist beint á framhjólið með lækkunardrifi og 3600 rpm vélarinnar urðu að 600 snúningum hjólsins á mínútu. Mótorinn skilaði 14 hp við 3600 snúninga og náði 109km/klst. Þessi hugmynd var endurvakin árið 1935 af fimm þýskum verkfræðingum þó að ekki kæmist það í framleiðslu aftur, en það er efni í heilan kafla.
En nú þarf hugsanlega að spóla aðeins til baka og skoða aðrar framfarir sem komu fram nálægt aldamótum.

Höfundar:
Gunnar Möller og
Wolfgang Frost Sahr

  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_heidda_small_web
    Heiddi

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon