Heim
Miðvikudagur, 03 Júní 2009 22:16

Efri hæð

Guðni og Balli komu úr Reykjavík og steyptu og slípuðu plötuna fimmtudaginn 28. maí, þannig að hún er verulega slétt og flott. Þvílíkir hörkukallar, keyrðu norður á aðfaranótt fimmtudags og byrjuðu strax um morguninn að steypa, Greifinn í hádeginu og matur hjá Mæju seint um kvöldið og svo rokið suður á föstudag, takk fyrir þetta strákar :-)

Á þriðjudag mættu strákarnir frá SS Byggir og byrjuðu að slá upp fyrir efri hæð og stefnt er á að steypa lengsta vegginn fyrir helgi. Til að spara peninga stendur til að vinna í sjálfboðaliðavinnu næstu helgi við að slá frá ofl.

Nýjar myndir í myndasafni og endilega skrifið í gestabókina.

Sunnudagur, 24 Maí 2009 11:26

Plata efri hæð

Nú er búið að járnabinda plötuna á efri hæð og kl 8 á föstudagsmorgun mættu svo píparar frá Halla Helga og nokkrir sjálfboðaliðar til að setja niður hitalagnir í glampandi sól og logni. Í hádeginu var svo gætt sér á pizzum í boði Greifanns sem var skolað niður með Coce í boði Vífilfells og svo kaffi á eftir í boði Kaffibrennslunnar. Það gekk vonum framar og allt búið um kl 15. Öðru hvoru megin við næstu mánaðarmót kemur svo Guðni múrari snigill #17 með menn með sér úr Reykjavík til að steypa og slípa plötuna, þetta er gjöf frá Guðna og kunnum við vel að meta þetta framtak sem og allra sem styrkja okkur í þessu stóra verkefni.
Mánudagur, 11 Maí 2009 23:15

Nýjar fréttir

ftPylsupartý
Föstudaginn 15. maí n.k. hefði Heiddi félagi okkar orðið 55 ára. Af því tilefni ætlum við að efna til smá samkomu. Við ætlum að hittast á torginu kl. 19:30, fara smá ökuferð um áttaleitið og hittast svo og grilla pylsur við Mótorhjólasafnið um 20:30. Komið verður við upp í kirkjugarði. Allir eru velkomnir hjólandi, bílandi og gangandi.

Mótorhjólasafnið
Safnið okkar gengur vel og viljum við hvetja fólk sem er til í einhverja sjálfboðavinnu að hafa samband eða skrá sig á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Þessa dagana erum við að járnabinda gólfið á efri hæðinni og stefnum á að steypa þá plötu í næstu viku svo hægt verði að klára uppsteypu á húsinu.

Mótormessa
Mótormessa verður kl. 11:00 á sunnudag í Glerárkirkju og boðið verður upp á ódýra súpu eftir messu, ágóði af súpunni rennur óskertur til Safnsins.

Aðalfundur
Eins og fram kom í síðasta fjöldaskeyti verður aðalfundur Tíunnar eftir mótormessuna á sunnudaginn á Kaffi Amor efri hæð klukkan 14:00. Mikilvægt er að sem flestir mæti því nú þarf að vekja klúbbinn úr dásvefni vetrarins. Nú er safnið risið úr jörðu og nú reynir á samstöðu félagsmanna

Fimmtudagur, 30 Apríl 2009 00:40

milliloftaplötur ofl

þá eru komnar milliloftaplötur á aðalhúsið og rest verður svo hífð á framhúsin eftir helgi. Einnig er búið að fylla að húsinu að framanverðu þannig að aðgengi er orðið betra. Um miðja næstu viku fer svo SS Byggir með sína menn í burtu í bili og við vinnum plötuna fyrir steypu og fleira. Til að spara pening leitum við nú eftir sjálboðaliðum í vinnu. Fyrirkomulagið verður þannig að að frá og með fimmtudeginum 7. Maí verður hægt að koma og hjálpa hvenær sem er milli 10 og 16 virka daga og það munar um allt. Kaffi og með því á staðnum.

Ef þetta er eitthvað sem þú gætir hugsað þér, þá skráðu þig á á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 8663500. Einnig er gott að skrá sig á póstlistann hér að neðan.  Glænýjar myndir í Myndasafninu okkar.

Mánudagur, 20 Apríl 2009 01:52

Sjálfboðaliðar

Laugardaginn 18. apríl hittust nokkrir hjólamenn og konur á svæðinu og löguðu til, naglhreinsuðu og slógu steypumótum frá. Veðrið var stórkostlegt og bara gaman að þessu, þökkum þeim kærlega sem mættu. Fyrir þá sem vilja er til listi yfir fólk sem vill hjálpa en einnig er gott að skrá sig á póstlista safnsins sem nú er komin í gagnið. Nú fer að koma að því að við getum farið að spara okkur mikla peninga með því að vinna hlutina sjálf.

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
  • th ridu hetjur um herod - forsida

    Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.


    Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér






Nýtt á spjallinu

Meira...


 

Molar

Þekkir þú gripinn ?

Þetta hjól fannst í ruslahaug á Djúpárbakka rétt  norðan Akureyrar fyrir nokkru og var fært safninu.

Nánar... Þekkir þú gripinn ?  

Umfjöllun

    um_bygginguna_small_web
    Bygging safnsinns

 

Póstlisti

Skráðu þig á póstlistan okkar



Afritunarréttur © 2010 Mótorhjólasafn Íslands. Öll Réttindi Áskilin.
Joomla! er frír hugbúnaður gefinn út með GNU/GPL Leyfinu.

Innskráning

xhamster amazon