Sunnudagur, 04 Október 2009 00:03
Kjarnakonur
Í dag laugard 3 okt komu nokkrar kjarnakonur úr mótorhjólaklúbbnum MC Nornir að hjálpa við safnið og kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Í næstu viku er svo stefnt á að byrja á gluggaísetningu og ekki væri verra ef einhverjir myndu kíkja við og hjálpa við það. Það væri spennandi að geta lokað húsinu sem fyrst fyrir veturinn.
Birt í
Bygging safnsinns
Merkt undir
Fimmtudagur, 24 September 2009 13:21
Öll uppsteypa búin
Þá er öll uppsteypa búin það eina sem eftir á að steypa er gólfið á neðstu hæðinni og spurning hvort það verður næsta verk eða hvort farið verður í að einangra húsið fyrir veturin, svo eru allir gluggarnir tilbúnir fyrir ísetningu, þannig að það er í raun nóg að gera en ekkert bólar á sjálboðaliðum til að hjálpa. Til samanburðar voru unnir tímar sjálboðaliða í ágúst 127 en nánast ekkert í september. Erfitt er að útskýra áhugaleysið en það er ljóst að ef ekki rætist úr verðum við að fresta opnun umtalsvert. Við erum alls ekki að ætlast til að fólk komi og vinni allan daginn, heldur munar mikið um hvern unnin tíma, þó það sé bara einn tími eftir vinnu stöku sinnum, margt smátt gerir eitt stórt.
Birt í
Bygging safnsinns
Merkt undir
Fimmtudagur, 24 September 2009 13:16
Flutningar
Síðustu dagar hafa farið að mestu í að flytja steypumót og fleira af svæðinu, þökkum þeim sem lánuðu okkur tæki til flutninga fyrir, því það sparaði mikið fé. Fleiri myndir af flutningum í myndasafni.
Birt í
Bygging safnsinns
Merkt undir
Þriðjudagur, 15 September 2009 17:28
Síðasta steypan í bili
Í dag voru síðustu þakkantarnir steyptir sem er mikill áfangi og síðasta steypan í bili. SS byggir er farin með vinnuskúra og verkfæri af staðnum og eru hættir í verkinu. Næstu dagar fara í að slá undan súlum og taka til á svæðinu, eins þarf að keyra steypumótum og ýmsu dóti burt af svæðinu. SS byggir leyfir okkur að hafa rafmagnsskúrinn lengur og þar er nú kaffiaðstaða ofl. minni á að alltaf vantar sjálfboðaliða til að hjálpa því nóg er að gera. Nýjar myndir fljótlega.
Birt í
Bygging safnsinns
Merkt undir
Miðvikudagur, 09 September 2009 20:56
Þakplötur steyptar
Nú er öll steypuvinna að verða búin, öll þök eru nú steypt og einungis á eftir að steypa þakkanta að hluta til. SS byggir er farinn með vinnubúðirnar og er að flytja sitt dót burt því þakkantarnir eru það síðasta sem þeir gera í húsinu. Næsta skref er að einangra húsið og setja í glugga og vonum við að fleiri sjái sér fært að hjálpa því frá og með næstu helgi verður safnstjóri einn að bauka á svæðinu. Til að auðvelda fólki að kíkja eftir vinnu á virkum dögum mun ég reyna að vera seinni part dags á svæðinu .
Eins og glöggir sjá eru breytingar á vefnum og fleiri í vændum, það er gert til að gera hann gagnvirkari og notendavænni. Vefurinn er nú beintengdur inn á nokkrar hjólasíður þannig að greinar og fréttir birtast sjálfkrafa þar. Fljótlega verður hægt að setja inn athugasemdir á fréttir og einnig er tilbúið spjallsvæði sem áhugafólk um gömul hjól getur skipst á ráðleggingum og varahlutum. Lítil hreyfing hefur verið á vefnum undanfarið vegna þessarar vinnu og mikils annríkis í byggingunni en það horfir nú til batnaðar.
Minni á myndasafnið
Eins og glöggir sjá eru breytingar á vefnum og fleiri í vændum, það er gert til að gera hann gagnvirkari og notendavænni. Vefurinn er nú beintengdur inn á nokkrar hjólasíður þannig að greinar og fréttir birtast sjálfkrafa þar. Fljótlega verður hægt að setja inn athugasemdir á fréttir og einnig er tilbúið spjallsvæði sem áhugafólk um gömul hjól getur skipst á ráðleggingum og varahlutum. Lítil hreyfing hefur verið á vefnum undanfarið vegna þessarar vinnu og mikils annríkis í byggingunni en það horfir nú til batnaðar.
Minni á myndasafnið
Birt í
Bygging safnsinns
Merkt undir
-

Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.
Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér
Nýtt á spjallinu
- Vantar Hraðamæli á CBR600F 99 Hornet 09-04-2010 09:32:02 Sigrun
- Vegna:vantar afturdempara 09-02-2010 17:24:56 joi
- vantar afturdempara 08-02-2010 23:48:27 Gislisveins
- óska eftir tveimur mótorhjóla hljóðkútum 15-01-2010 20:01:40 smari
- Gömul númer 01-12-2009 23:26:47 Njall
- Z650 26-11-2009 09:40:10 kalligeir
- Vegna:Safnið 16-11-2009 11:57:01 joi
- Ýmis dekk til sölu 11-11-2009 23:45:12 joi
- Safnið 11-11-2009 22:57:50 Trausti
- gamalt hjól í smíðum 27-10-2009 18:04:53 Jómbi

