Föstudagur, 09 Apríl 2010 08:57
Þakeinangrun og fleiri fréttir
Á fimmtudag (8. Apríl) sást loks til tveggja úrkomulausra daga í röð á Akureyri og þá var vaðið í að setja dúk á fyrsta þakið af fjórum. Á þakið kemur fyrst þolplast, svo tvö lög af plasteinangrun og eitt lag af ull, síðan dúkurinn og síðast tíu sentimetra lag af möl. Næstu daga verður haldið áfram að grípa úrkomulausa daga og vinna á fulllu í þakinu þar sem það er grundvöllur þess að geta notað húsið í sumar. Óskum við þess að fólk komi og hjálpi ef tök eru á, þó sérstaklega þegar farið verður í stóra þakið því það verður að vinna hratt og á stuttum tíma. Inni er búið að grófsparsla veggina niðri en ekki er hægt að fínsparsla eða setja gips á milliveggi fyrr en þakið er þétt, þannig að allt veltur á þakinu þessa dagana.
Næstu helgi er áætlað að bjóða þeim sjálboðaliðum sem hjálpað hafa í pizzu og bjór í safninu til að fagna því hvað langt verkið er komið á aðeins 14 mánuðum, nánar auglýst hér á síðunni í vikunni. Í vor verður svo haldið boð fyrir styrktaraðila og fyrirtæki sem lagt hafa fram fé, vörur og fleira. Stefnt er að því að fullri alvöru að opna neðri hæðina á Bíladögum 17. Júní með sýningu.
Næstu helgi er áætlað að bjóða þeim sjálboðaliðum sem hjálpað hafa í pizzu og bjór í safninu til að fagna því hvað langt verkið er komið á aðeins 14 mánuðum, nánar auglýst hér á síðunni í vikunni. Í vor verður svo haldið boð fyrir styrktaraðila og fyrirtæki sem lagt hafa fram fé, vörur og fleira. Stefnt er að því að fullri alvöru að opna neðri hæðina á Bíladögum 17. Júní með sýningu.
Birt í
Bygging safnsinns
Miðvikudagur, 31 Mars 2010 23:56
Milliveggir, wc ofl
Allt er tilbúið fyrir þakvinnuna nema veðrið, það vantar tvo þurra daga án vinds til að geta byrjað á því en einangrunin, þakdúkurinn og allt sem til þarf er tilbúið á staðnum og verður farið í þakið um leið og veður leyfir. Á meðan er nóg að gera inni, milliveggir eru á leið upp og klósett tengd, einnig er verið að grófsparsla veggi og múra í kringum glugga. Um páskahelgina verður unnið eitthvað flesta dagana og allir velkomnir að kíkja við að hjálpa eða bara að fá kaffisopa. Ef þú ert að spá i að kíkja er best að hringja í 8663500 til að vita hvenær við verðum á staðnum.
Birt í
Bygging safnsinns
Föstudagur, 05 Mars 2010 10:05
Einangrun, þak ofl
Nú erum við komnir með skæralyftu sem nær alla leið upp á þak, sem þýðir að lítið mál verður að klára að einangra húsið og koma einangrun og dúk upp á þak, hann Óli í Pallaleigunni ehf lánar okkur hana endurgjaldslaust og á hann miklar þakkir fyrir. Næst þegar veðurspáin sýnir úrkomuleysi í 2-3 daga munum við reyna að byrja á þakinu, sem er úrslitaatriði ef við ætlum að nota húsið eitthvað í sumar. Við verðum að vinna á morgun laugardag frá 11 og nú er komin hiti á húsið og flott kaffiaðstaða inni, nú er ekki hægt að afsaka sig með veðrinu eða kulda, bara mæta og hjálpa.
Birt í
Bygging safnsinns
Þriðjudagur, 23 Febrúar 2010 21:44
Gólfhiti settur á
Þá er komin einangrun á miðhúsið og gólfhitanum verður hleypt á þann hluta á morgun (miðvikudag 24-02) Þá er komin betri vinnu og kaffiaðstaða inni í húsinu. Stefnt er á að koma ullinni allri á sem fyrst til að geta hleypt hita á alla neðri hæðina. Gott væri að fá einhverja til að hjálpa næsta laugardag við það. þegar hitin er komin á, er hægt að gera svo margt, t.d. að smíða milliveggi og setja upp vaska og salerni.
Birt í
Bygging safnsinns
Föstudagur, 12 Febrúar 2010 17:27
!!! Fokhelt
Birt í
Bygging safnsinns
-

Safnið er í fjáröflunarskyni að selja bókina Þá riðu hetjur um héröð - 100 ára saga mótorhjólsinns á Íslandi. Bókin kostar 2990kr og má panta í hjá safnstjóra í síma 8663500 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Sendum í póstkröfu utan Akureyrar. Lesa má um bókina hér.
Villt þú leggja þitt af mörkum við uppbyggingu Mótorhjólasafns Íslands ? Nánari upplýsingar hér
Nýtt á spjallinu
- Vantar Hraðamæli á CBR600F 99 Hornet 09-04-2010 09:32:02 Sigrun
- Vegna:vantar afturdempara 09-02-2010 17:24:56 joi
- vantar afturdempara 08-02-2010 23:48:27 Gislisveins
- óska eftir tveimur mótorhjóla hljóðkútum 15-01-2010 20:01:40 smari
- Gömul númer 01-12-2009 23:26:47 Njall
- Z650 26-11-2009 09:40:10 kalligeir
- Vegna:Safnið 16-11-2009 11:57:01 joi
- Ýmis dekk til sölu 11-11-2009 23:45:12 joi
- Safnið 11-11-2009 22:57:50 Trausti
- gamalt hjól í smíðum 27-10-2009 18:04:53 Jómbi

